Fyrir þá sem ekki vita er ég umsjónarkona yfir frístundaklúbb fyrir fötluð börn og unglinga í Breiðholti. Þetta er alveg nýtt starf. Þannig að þetta er mjög spennandi og það hefur verið gaman að skipuleggja starfið og kaupa inn húsgögn og svona. Ég er líka með flott starfsfólk sem er búið að standa sig mjög vel. Við erum ennþá bara að kynnast stelpunum sem eru hjá okkur og þekkja inn á þær og svona. Núna fer starfið að fara á fullt og það eru að koma inn fleiri umsóknir frá foreldrum þannig að það er allt að gerast. Svo var ég líka að heyra um daginn að á næsta ári förum við 100% starfsmennirnir í Miðbergi til Finnlands.
Annars er ég að venjast því að vinna frá 9-5 og vera bundinn frá 9-5 en það er að venjast og stundum finnst mér mjög óþægilegt að geta ekki skroppið þegar ég vil eins og þegar maður er í skóla, en svo er auðvitað algjör lúxus að vera í búinn í vinnu klukkan 5 og í fríi um helgar. Ég er reyndar enn með liðveislu sem og er með 46 klukkustundir í mánuði sem er heldur mikið. En þetta eru bara svo frábærar stelpur þannig að ég veit ekki alveg hvað ég geri.
Svo erum ég og Hrefna núna hjá einkaþjálfara og hann er svo ofvirkur að við mætum til hans fimm sinnum í viku, og við erum í einn og hálfan tíma í einu! En verst er að ég er ekki alveg að taka mataræðið með líka. En allavega það er mjög fínt að vera kominn af stað í ræktinni. En svo er búið að fastráða Rúnar á útvarpinu hann byrjar 1.október. Þannig að það er bara flott þótt launin séu ömurleg. Svo var hann að vinna á vestfjörðum í síðustu viku og kom í sjónvarpsfréttunum
svo ég monti mig nú aðeins.
Svo er ég búin að fara á djammið síðustu tvær helgar, sem er bara nokkuð gott. Eða ég fór nú kannski ekki á djammið síðustu helgi, ég nennti ekki að kíkja niður í bæ. Sóley hélt upp á afmælið sitt á föstudaginn og fórum við út að borða og svona.
Á sunnudaginn fórum við í skírn hjá bróðursyni hans Rúnars og hlaut hann nafnið Marínó Freyr og fórum við síðan í skírnarveislu fyrr um daginn. Á laugardeginum fórum við síðan í fjölskyldu- og húsdýragarðinn með Bjarka Fannari frænda rúnars og var það mikið fjör og mikið gaman ;)
Held að þetta sé komið nóg ;)
1 athugasemd